Oraxs byggir á móduleiningum sem virka sjálfstætt eða sem samþætt heild. Hver eining sinnir tilteknum þætti í rekstrinum – allt frá tímabókun og sjúkraskrám yfir í röntgengreiningar, bókhald, lagerstýringu og jafnvel þjálfun starfsfólks. Allt er samtengt í skýinu, knúið áfram af innbyggðri gervigreind sem lærir á notkun, mælir árangur og leggur sjálfvirkt til leiðir til að bæta verkflæði og nýtingu.
Einingar eins og Oraxs Book, Oraxs Chart, Oraxs View, Oraxs Pay, Oraxs Connect og Oraxs Reports bjóða upp á víðtæka virkni sem hefur áður aðeins verið í boði í stórum, dýrum og ósveigjanlegum kerfum sem krefjast mikils viðhalds. Með Oraxs fá tannlæknar nú fullkomna stjórn á öllu rekstrarferlinu – í einni lausn.
Oraxs innleiðir gervigreind þar sem hún skiptir máli:
– Til að greina röntgenmyndir sjálfvirkt með nákvæmum niðurstöðum.
– Til að rita sjúkraskýrslur úr hljóði eða stikkorðum.
– Til að meta hvort sjúklingur sé kvíðinn í gegnum símtal og bjóða mannlega aðstoð.
– Til að fylgjast með notkun á efnum og panta sjálfkrafa.
– Til að greina tekjutap og benda á tækifæri til hagræðingar í rekstri.
Þetta þýðir minni tími í skráningu, minni villur, meiri yfirsýn – og ánægðari sjúklingar og starfsfólk.
Oraxs var hannað með það í huga að engar tvær tannlæknastofur eru eins. Lausnin er því sérsniðanleg og getur virkað sem létt byrjunarpakki fyrir litlar stofur – t.d. bókun + greiðslur – eða sem alhliða lausn fyrir stórar klíníkur með mörgum tannlæknum, sérfræðingum og starfsfólki.
Hægt er að byrja með eina einingu og bæta síðan við öðrum eftir þörfum. Þetta bíður upp á hagstæðan kostnað í byrjun, minni áhættu og hraðari innleiðingu.
Oraxs er íslensk hugmynd, þróuð í samstarfi við tannlækna, en hönnuð fyrir alþjóðamarkað. Lausnin er fullkomlega samhæf við evrópskar og bandarískar reglur, s.s. GDPR og HIPAA. Hún styður við fjöltyngt umhverfi og hefur sjálfvirka aðlögun að reglum og verklagi eftir löndum. Þetta gerir Oraxs að alvöru keppinauti við rótgrónar lausnir sem hafa ekki þróast með markaðnum.
Fyrsta útgáfan af Oraxs er í prófun á Íslandi. Nokkrar stofur eru að innleiða kerfið á fyrsta ársfjórðungi 2025 með mjög jákvæðum viðbrögðum. Markmiðið er að ná yfir 150 viðskiptavinum innan árs og hefja sókn á Norðurlönd, Evrópu og Bandaríkin með skalanlegu söluneti og samstarfi við dreifiaðila og fagaðila á hverjum markaði.