
Mikilvægasti vöxtur tannlæknamarkaðarins í heila öld
Oraxs getur orðið lykillausn fyrir þennan markað – og fjárfestar sem ganga inn núna eru með í uppbyggingu áður en arðsemin rís hratt.
Oraxs er byltingarkennd, skýjabundin og gervigreindardrifin hugbúnaðarlausn sem umbreytir því hvernig tannlæknastofur starfa – frá fyrstu snertingu við sjúklinginn til síðustu skýrslu og greiðslu. Þetta er ekki bara bókunarkerfi eða sjúkraskráarkerfi. Oraxs er heildarkerfi – hannað frá grunni með það að leiðarljósi að gera rekstur tannlæknastofa einfaldari, snjallari og arðbærari.
Oraxs byggir á móduleiningum sem virka sjálfstætt eða sem samþætt heild. Hver eining sinnir tilteknum þætti í rekstrinum – allt frá tímabókun og sjúkraskrám yfir í röntgengreiningar, bókhald, lagerstýringu og jafnvel þjálfun starfsfólks. Allt er samtengt í skýinu, knúið áfram af innbyggðri gervigreind sem lærir á notkun, mælir árangur og leggur sjálfvirkt til leiðir til að bæta verkflæði og nýtingu.
Einingar eins og Oraxs Book, Oraxs Chart, Oraxs View, Oraxs Pay, Oraxs Connect og Oraxs Reports bjóða upp á víðtæka virkni sem hefur áður aðeins verið í boði í stórum, dýrum og ósveigjanlegum kerfum sem krefjast mikils viðhalds. Með Oraxs fá tannlæknar nú fullkomna stjórn á öllu rekstrarferlinu – í einni lausn.
Oraxs innleiðir gervigreind þar sem hún skiptir máli:
– Til að greina röntgenmyndir sjálfvirkt með nákvæmum niðurstöðum.
– Til að rita sjúkraskýrslur úr hljóði eða stikkorðum.
– Til að meta hvort sjúklingur sé kvíðinn í gegnum símtal og bjóða mannlega aðstoð.
– Til að fylgjast með notkun á efnum og panta sjálfkrafa.
– Til að greina tekjutap og benda á tækifæri til hagræðingar í rekstri.
Þetta þýðir minni tími í skráningu, minni villur, meiri yfirsýn – og ánægðari sjúklingar og starfsfólk.
Oraxs var hannað með það í huga að engar tvær tannlæknastofur eru eins. Lausnin er því sérsniðanleg og getur virkað sem létt byrjunarpakki fyrir litlar stofur – t.d. bókun + greiðslur – eða sem alhliða lausn fyrir stórar klíníkur með mörgum tannlæknum, sérfræðingum og starfsfólki.
Hægt er að byrja með eina einingu og bæta síðan við öðrum eftir þörfum. Þetta bíður upp á hagstæðan kostnað í byrjun, minni áhættu og hraðari innleiðingu.
Oraxs er íslensk hugmynd, þróuð í samstarfi við tannlækna, en hönnuð fyrir alþjóðamarkað. Lausnin er fullkomlega samhæf við evrópskar og bandarískar reglur, s.s. GDPR og HIPAA. Hún styður við fjöltyngt umhverfi og hefur sjálfvirka aðlögun að reglum og verklagi eftir löndum. Þetta gerir Oraxs að alvöru keppinauti við rótgrónar lausnir sem hafa ekki þróast með markaðnum.
Fyrstu tvær einingar Oraxs verða tilbúnar haustið 2025. Þær verða prófaðar af þróunaraðilum og fagfólki áður en farið verður af stað með markaðssetningu á Íslandi, Norðurlöndunum og í Bandaríkjunum.
Oraxs er þróuð af tannlæknum – fyrir tannlækna, með það að markmiði að einfalda daglegan rekstur, auka afköst og bæta upplifun bæði starfsfólks og sjúklinga.
Tannlæknageirinn stendur á barmi tæknibyltingar. Sjúklingar gera kröfu um meiri hraða, sjálfvirkni og gagnsæi. Starfsfólk tannlæknastofa glímir við gömul, ósamhæfð kerfi sem henta ekki nútíma kröfum. Þrátt fyrir að markaðurinn fyrir stafrænar heilbrigðislausnir sé í örum vexti, þá hafa tannlæknastofur setið eftir í stafrænu umbreytingunni – þar til nú.
Oraxs mætir þessum raunverulegu þörfum með samþættri, snjallri og gervigreindardrifinni lausn sem leysir það sem önnur kerfi gera ekki: hún tengir allt saman – bókanir, meðferðir, skýrslugerð, röntgen, bókhald, birgðir og þjónustu við sjúklinginn – og skapar heildarsýn og stjórn sem enginn samkeppnisaðili býður.
Oraxs getur orðið lykillausn fyrir þennan markað – og fjárfestar sem ganga inn núna eru með í uppbyggingu áður en arðsemin rís hratt.
Oraxs nýtir gervigreind til að bæta alla þætti reksturs tannlæknastofa: Þessi virkni er ekki í boði hjá samkeppnisaðilum. Með Oraxs fær tannlæknirinn sína eigin AI aðstoðarmann – sem vinnur í bakgrunni allan daginn.
Við stefnum á að byrja í Íslandi og á Norðurlöndum og þróa með beinni sölu og samstarfi við staðbundna dreifingaraðila í Evrópu og Bandaríkjunum – þar sem eftirspurn eftir skýjalausnum með AI er stöðugt að aukast.
Oraxs er hugbúnaðarlausn með áskriftarlíkani. Þegar ný stofu bætist við kerfið er viðbótarkostnaður nær enginn. Það þýðir: Í fjárfestingaráætlun okkar er gert ráð fyrir að ná 150 stofum á fyrsta ári, með tekjum yfir 300 milljónir ISK – og að fara yfir 20 milljarða ISK í árstekjur innan 3ja ára
Með því að fjárfesta núna, færð þú aðgang að vaxtarpalli sem hefur verið smíðaður í tvö ár og er að klára fyrstu viðskiptavörur á næstu 1,5 til 2 mánuðum. Þú ert með frá byrjun – og með meiri áhrif.
Fjárfesting nú tryggir aðgang að verðmæti áður en það rís.
Oraxs sameinar það besta úr tveimur heimum: tannlækna sem vita hvað virkar í raunheimi og hugmyndasmiði og frumkvöðla sem byggja upp snjalla, tæknilega lausn sem getur skalað hratt á alþjóðavísu. Hönnun kerfisins hefur frá fyrsta degi byggt á raunverulegri reynslu úr klínísku umhverfi – með þátttöku íslenskra og evrópskra fagmanna sem starfa við tannlækningar daglega.
Við erum ekki bara að þróa hugbúnað. Við erum að hanna lausn sem er prófuð og mótuð af fólki sem rekur eigin stofur, þjónustar eigin sjúklinga og veit nákvæmlega hvað þarf – og hvað má sleppa.
Oraxs er hannað sem alþjóðleg lausn með staðbundna aðlögun. Við höfum frá upphafi þróað kerfið með það að markmiði að virka bæði fyrir sjálfstæðar stofur og stærri tannlæknakeðjur, með sveigjanlegri verðlagningu og virðiskeðju sem tekur mið af mismunandi regluverki, tækniþroska og notendamenningu. Það gerir Oraxs að einstöku tækifæri fyrir þrjá af stærstu og verðmætustu markaðssvæðum heims:
Um 5.850 tannlæknastofur samanlagt
• 300.000–400.000 tannlæknastofur innan ESB og EFTA
Um 186.000 tannlæknastofur Árlegur veltumarkaður yfir 162 milljarðar USD (2025)
Oraxs er sveigjanleg lausn sem virkar:
Kerfið býður upp á „Lite“ áskriftir, sérpakka fyrir keðjur og sjálfvirka skalanleika í gegnum cloud multi-tenancy. Þetta gerir fjárhagslega inngöngu sveigjanlega – og mögulegt að selja kerfið í áföngum, eftir markaði, eftir stofustærð og getu.
Oraxs hefur raunhæfa möguleika til að verða leiðandi alþjóðleg lausn á sviði stafrænnar tannlæknaþjónustu – með algera samþættingu, skýjadrifið rekstrarflæði og gervigreind sem raunverulegt virðisauka tæki.
ITHG Dental AI opnar skrifstofu í Raleigh, Norður-Karólínu haustið 2025, í hjarta bandarísks nýsköpunarumhverfis. Skrifstofan verður staðsett á Centennial Campus við North Carolina State University (NC State) – einni öflugustu tækni- og rannsóknarmiðstöð landsins
Umfjöllun í Viðskiptablaðinu: „Íslenskar tæknilausnir í Raleigh“
Þróun Oraxs fer þar fram í nánu samstarfi við tannlækna og sérfræðinga innan NC State, sem tryggir að lausnin taki mið af bandarískum regluverkum, verklagi og klínískum þörfum frá upphafi.
Oraxs verður þannig mótað í beinu sambandi við notendur á einu tæknivæddasta og samkeppnishæfasta markaðssvæði heims.
Fjárfestingartilboð í ITHG Dental AI ehf. („Félagið“) samkvæmt skilmálum á vefnum www.ithgdental.ai/invest fellur ekki undir útboðsskyldu samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, þar sem fjárhæðin er undir viðmiðunarfjárhæð 8 milljóna evra á tólf mánaða tímabili, sbr. undanþáguákvæði 1. mgr. 50. gr. laganna.
Félagið býður ekki upp á skráð verðbréf og fjárfestingartilboð er einvörðungu gert að undangengnu samþykki stjórnar. Engar ábyrgðir eru veittar varðandi ávöxtun, seljanleika eða verðþróun eignarhlutarins. Fjárfesting er eingöngu ætluð aðilum sem skilja áhættu tengda nýsköpunarfélögum á frumstigi og eru færir um að taka upplýsta fjárfestingarákvörðun.
Allur samningsferill fer fram í gegnum formleg söluskjöl og rafræna undirritun í samræmi við íslensk lög. Fjárfestum er ráðlagt að kynna sér fjárfestinguna í heild og leita óháðrar ráðgjafar áður en endanleg ákvörðun er tekin.