Kynntu þér teymið okkar

Indriði Þröstur Gunnlaugsson

Stofnandi og stjórnarformaður

Indriði er frumkvöðull með yfir 25 ára reynslu í nýsköpun, stafrænni umbreytingu og tæknistjórnun. Hann hefur komið að stofnun og uppbyggingu fjölmargra fyrirtækja á sviði hugbúnaðar, gervigreindar og alþjóðaviðskipta og situr í dag í stjórnum nokkurra slíkra félaga. Auk þess gegnir hann stjórnarsæti hjá Rauða krossinum á höfuðborgarsvæðinu.

Með MBA gráðu frá BI í Osló og margra ára starfsreynslu frá Norðurlöndum og Evrópu, býr Indriði yfir víðtækri innsýn í alþjóðlega tækniumhverfið. Hann leiðir ITHG Dental AI með skýra framtíðarsýn og er drifkrafturinn á bak við Oraxs – nýstárlega, skýjabundna hugbúnaðarlausn sem innleiðir gervigreind í rekstur og þjónustu tannlæknastofa á alþjóðlegum vettvangi.


Indriði is an entrepreneur with 25+ years in innovation, tech, and AI. He has founded multiple companies and serves on several boards


, including the Red Cross. With an MBA from BI in Oslo and experience across the Nordics and Europe, he leads ITHG Dental AI and Oraxes — an AI-driven dental software solution.

See More

Dmitry Andreevich Torkin

Tannlæknir, hluthafi og þróunarstjóri Oraxs

Dmitry er tannlæknir með dýrmæta reynslu frá bæði Svíþjóð og Íslandi, þar sem hann hefur sameinað klíníska dýpt og tæknilega sýn í eigin rekstri. Hann hefur verið frumkvöðull í að innleiða gervigreind og stafrænar lausnir í tannlækningar og er einn af lykilhöfundum Oraxs hugbúnaðarins.

Sem þróunarstjóri Oraxs stýrir hann samhæfingu milli tannlækna og tækniteyma og tryggir að lausnin endurspegli raunverulegar klínískar þarfir. Dmitry leiðir notendaprófanir og hönnunarvinnu með áherslu á verkflæði, skjölun og framúrskarandi notendaupplifun fyrir bæði starfsfólk og sjúklinga.

Kristín Gígja Guðmundsdóttir

Tannlæknir, hluthafi og klínískur ráðgjafi

Kristín veit nákvæmlega hvað virkar í tannlæknastofu – og hvað ekki. Með áralanga reynslu sem framkvæmdastjóri og meðeigandi hjá Tannval hefur hún einstakt innsæi í þjónustu, móttöku og rekstrarflæði. Hún hefur verið lykilaðili í hönnun Oraxs frá fyrstu skissu, með það að markmiði að allt frá bókun og upp í greiðslu endurspegli raunverulegan dag tannlækna og skjólstæðinga þeirra.

Hjalti Garðarsson

Hluthafi og Evrópuráðgjafi

Hjalti rekur eigin tannlæknastofu í Búdapest og þekkir vel bæði íslenska og evrópska sjúklinga – og ekki síður hvernig á að reka klíník á samkeppnismarkaði. Sem hluthafi og ráðgjafi hjá Oraxs hjálpar hann okkur að fínstilla kerfið út frá raunverulegum þörfum klínískra notenda – og stýrir innkomu okkar inn á Evrópumarkað. Hjalti hefur brennandi áhuga á lausnum sem styðja við faglega samvinnu og skýrt verkflæði.

Gunnlaugur Jón Rósarsson

Tannskurðlæknir, hluthafi og faglegur ráðgjafi

Gunnlaugur er einn virtasti sérfræðingur landsins í tannholsskurðlækningum, starfandi á Gulltönn og sem kennari við Háskóla Íslands. Hann er hluti af faglegri ráðgjöf Oraxs og hefur lagt sitt af mörkum við mótun Oraxs Chart og View – sérstaklega hvað varðar hvernig AI getur stutt við flókin tilvik og meðferðarskráningu. Hann er jafnframt hluthafi í ITHG Dental AI og verður meðal þeirra fyrstu sem prófa kerfið í klínísku umhverfi áður en það fer á markað.

Teymi í Rúmeníu og Sri Lanka

Við höfum sett upp tvö sjálfstæð þróunarteymi sem vinna samhliða:

Teymið í Rúmeníu vinnur að grunnvirkni kerfisins, m.a. viðmóti fyrir starfsfólk, móttöku og klíníska skjölun. Þeir eru sérfræðingar í React.js, Node.js og Azure og hafa unnið að stórum heilbrigðislausnum í Evrópu.

Teymið í Sri Lanka vinnur að þróun fleiri móduleininga í Oraxs-kerfinu og einbeitir sér að því að byggja upp örugga, skalanlega SaaS-lausn með fullkominni viðskiptavinaaðgreiningu (multi-tenant architecture) og sjálfvirkri sjúklingayfirsýn.

Þessi tvö teymi eru hreyfiafl lausnarinnar og vinna þétt með klínísku ráðgjöfunum að því að útfæra kerfið í samræmi við raunverulegan rekstur tannlækna.